Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Trúin ætti að stjórna öllu okkar lífi. Við alkóhólistar lifðum margklofnu lífi. Við urðum að finna okkur leið til að gera það heilt. Í drykkjuskapnum, var líf okkar allt í dreifðum, ósamstæðum brotum. Við verðum að raða brotum lífs okkar saman aftur. Það gerum við með því að efla með okkur trú á æðri lögmál í alheiminum sem gera líf okkar og tilveru að raunveruleika og gefur því þýðingu og tilgang. Við leggjum ruglað líf okkar í hendur þessa máttar, við komum okkur í samræmi við almættið, og líf okkar kemst aftur í samt lag. Er líf mitt aftur í lagi?
Íhugun dagsins
Forðastu óttann eins og pestina. Ótti, hversu lítill sem hann er sargar trúarþræðina sem tengja okkur Guði. Smávegis slit hlýtur að veikja þræðina með tímanum, svo að smávonbrigði eða áfall geta orðið þess valdandi að böndin bresta. Bönd trúarinnar halda ef óttinn kemur ekki við sögu. Forðastu allt hugarvíl, það er í ætt við óttann. Mundu að allur ótti er tryggðarof við Guð. Hann er afneitun á umhyggju og vernd Guðs.
Bæn dagsins
Ég bið að ég beri í dag svo mikið traust til Guðs, að ég óttist ekki neitt að ráði. Ég bið að ég sé þess fullviss að Guð muni annast um mig þegar til lengdar lætur.