Codzienne rozważanie · 352. dzień roku

18 grudnia

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ef við eigum ekki lykil trúarinnar til að opinbera okkur tilgang lífsins, erum við glötuð. Við veljum ekki trúna af því að hún sé einn af valkostum okkar, heldur af því að hún er eina leiðin. Mörgum hefur mistekist og á eftir að mistakast. Við getum ekki lifað sigursælu lífi án trúar, við erum í sjávarháska án stýris og akkeris, okkur rekur um lífsins ólgusjó. Heimilislausir förumenn. Við erum eirðarlaus í hjarta uns við finnum hvíld hjá Guði. Án trúarinnar, er líf okkar þýðingarlaus röð óskyldra tilviljana, án orsaka eða afleiðinga. Hef ég fundið hvíld í trúnni?

Íhugun dagsins

Ómælisvíddirnar umhverfis okkur, að meðtalinni þessari dásamlegu heimskringlu, sem við byggjum, var einu sinni ef til vill aðeins í huga Guðs. Því nær sem stjörnufræðingar og eðlisfræðingar komast upprunalegri samsetningu allra hluta, þeim mun meir nálgast alheimurinn að verða stærðfræðileg forskrift, sem er hugsun. Kannski er alheimurinn hugsun Drottins. Við verðum að reyna að lesa hugsanir Guðs. Við verðum að reyna að fá leiðsögn hans, svo sem um það, hvert sé markmið hans með heimsbyggðinni og hvernig við getum að því stutt, að það markmið náist.

Bæn dagsins

Ég bið að ég hafi ekki áhyggjur af takmörkunum hugarheims míns mannlega huga. Ég bið að mér sé unnt að lifa sem væri hugur minn endurspeglun af himneskri hugsun.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.