Codzienne rozważanie · 365. dzień roku

31 grudnia

Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.

AA-hugleiðing dagsins

Ég ætla að sækja vel fundi, vera örlátur í gjöfum mínum, mildur í gagnrýni, tillögugóður og ástúðlegur í viðhorfum. Ég ætla að helga AA-samtökunum áhuga minn, eldmóð, hollustu, en fyrst og fremst sjálfan mig. „Faðirvorið“ er orðið hluti af daglegum AA-hugleiðingum mínum: „Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn. Til komi þitt ríki. Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himnum. Gef oss í dag vort daglegt brauð. Og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu“. Hef ég lagt sjálfan mig í sölurnar?

Íhugun dagsins

Þegar við lítum um öxl yfir nýliðið ár, hefur það verið gott ár að því leyti að við höfum lagt til þess góðar hugsanir, góð orð, og góðar dáðir. Ekkert af því sem við höfum hugsað, sagt og gert þarf að fara til spillis. Við getum lært bæði af góðri og slæmri reynslu. Fortíðin er ekki alveg horfin í vissum skilningi. Árangur hennar, til ills eða góðs, er með okkur á þessari stundu. Við getum aðeins lært af reynslunni, og ekkert af reynslu okkar er alveg til einskis. Við getum þakkað Guði í auðmýkt fyrir hið góða á liðnu ári.

Bæn dagsins

Ég bið að ég beri með þér það sem gott er inn í komandi ár. Ég bið að ég haldi áfram göngu minni í trú, bæn og von.

Nowy dzieńDzień wybrany losowo

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.