Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
AA-leiðin er vegur til trúarinnar. Við höfum ekki full not af stefnunni fyrr en við leggjum líf okkar í hendur mætti sem er okkur sjálfum æðri og treystum því að þessi máttur veiti okkur þann styrk sem við þurfum. Við eigum enga betri leið. Án hennar getum við ekki orðið allsgáð. Við getum haldið okkur þurrum um sinn án hennar. En ef við ætlum að lifa lífinu til fulls, verðum við að fara leið guðstrúarinnar. Það er okkar slóð. Henni verðum við að fylgja. Er ég á vegi trúarinnar?
Íhugun dagsins
Lífið er ekki hamingjuleit. Hamingja er aukageta þess að lifa réttu líferni, afleiðing þess að breyta rétt. Vertu ekki að leita hamingju, en leitaðu réttra lifnaðarhátta og þú uppskerð hamingjuna að launum. Lífið er stundum sem herganga skyldustarfa um leiða, dimma daga. En hamingja heilsar á ný, eins og bros frá Guði í viðurkenningarskyni fyrir tryggð þína. Sönn hamingja á ætíð rætur sínar að rekja til rétts lífernis.
Bæn dagsins
Ég bið að ég leiti ekki hamingjunnar heldur leitist við að gera rétt. Ég bið að ég muni síður sækjast eftir nautnum heldur velja það, sem færir mér sanna hamingju.