Brak tłumaczenia; wyświetlany jest islandzki oryginał.
AA-hugleiðing dagsins
Þá komum við að AA-samtökunum. Að hluta til eru þau hópmeðferð. Að hluta andlegt bræðralag. En þau eru jafnvel meira. Þau byggjast á sameiginlegum veikindum, sameiginlegum brestum, sameiginlegu vandamáli. Þau skjóta rótum djúpt í einkalíf okkar og einstaklingsbundnar þarfir okkar. Þau krefjast þess að við tjáum hvert öðru til fulls okkar innstu hugsanir og leyndustu vandamál. Öllum hindrunum okkar á milli er sópað frá. Þannig verður það að vera. Svo reynum við að hjálpa hvert öðru til að ná bata. AA-samtökin eru byggð á einlægri löngun til gagnkvæmrar hjálpar. Við getum verið viss um að finna samúð, skilning og raunhæfa hjálp í samtökunum. Þetta gerir AA-samtökin að þeim bestu sem við þekkjum. Met ég dýpt AA-samtakanna að fullu?
Íhugun dagsins
Æðri máttur gefur okkur handleiðslu til réttra ákvarðana, ef við biðjum þess. Við megum trúa því að margir þættir lífs okkar hafi verið ætlaðir í smáu sem stóru fyrirfram af Guði ásamt gnægðum kærleika og fyrirgreiðningar á því sem okkur kann að verða á. Við getum beðið þeirrar bænar í dag að okkur sé vísuð rétta leiðin. Við eigum kost á að velja hið góða, og þegar við tökum þann kostinn, finnum við að almættið styður við bakið á okkur. Við getum öðlast fullt samræmi við ætlun Guðs með líf okkar.
Bæn dagsins
Ég bið að ég velji rétt í dag. Ég bið að mér verði sýnt hvernig ég á að lifa lífinu rétt í dag.